Kaupskilmálar

Kaupskilmálar Easy CV

Hér eru helstu upplýsingar um kaup, greiðslu, afhendingu og notkun stafrænnar þjónustu hjá Easy CV.

Síðast uppfært: 4. júlí 2026

1. Almennt um kaup

Kaupskilmálar þessir gilda um kaup á þjónustu og stafrænum skjölum á Easy CV. Með kaupum samþykkir notandi þá skilmála sem birtir eru á vefnum hverju sinni.

Easy CV er íslensk ferilskráargerð sem hjálpar notendum að setja upplýsingar sínar fram í faglegri ferilskrá og/eða kynningarbréfi.

2. Verð og greiðsla

Verð fyrir þjónustu Easy CV kemur fram á vefnum áður en kaup eru staðfest. Verð geta breyst án fyrirvara, en breytingar hafa ekki áhrif á kaup sem þegar hafa verið staðfest.

Greiðsla fer fram í gegnum þann greiðslumáta eða greiðsluþjónustuaðila sem er í boði á vefnum hverju sinni.

3. Afhending stafrænnar þjónustu

Easy CV afhendir stafræna þjónustu og/eða stafræn skjöl. Markmiðið er að notandi fái aðgang að keyptri útgáfu eftir greiðslu, til dæmis ferilskrá án vatnsmerkis eða aðra þá þjónustu sem valin er í kaupferlinu.

Þar sem um stafræna þjónustu er að ræða getur afhending farið fram strax eða mjög fljótlega eftir að greiðsla hefur verið staðfest.

4. Kaup á ECV Kunnáttuprófum

ECV Grunnpróf kostar 6.900 kr. Prófreglur ECV Kunnáttuprófa eru hluti af þessum kaupskilmálum. Við kaup fær notandi aðgang að því prófi og þeim tilraunum sem koma fram í kaupferlinu. Tvær tilraunir eru innifaldar nema annað sé sérstaklega tekið fram.

Prófið fer fram í fullum skjá og notandi hefur 45 sekúndur til að svara hverri spurningu. Þegar tíminn rennur út fer prófið sjálfkrafa áfram og þá telst ekkert svar hafa verið gefið við viðkomandi spurningu.

Ekki má skipta um flipa eða vafraglugga, opna annað forrit, lágmarka vafrann eða fara úr fullum skjá á meðan prófið stendur yfir. Klukkan heldur áfram að telja þótt notandi fari úr prófglugganum.

Við fyrsta frávik frá prófglugganum í hverri tilraun fær notandi viðvörun. Við annað frávik verður aðeins núverandi tilraun ógild og prófinu lýkur. Ógild tilraun telst sem ein af tveimur inniföldum tilraunum. Ef önnur tilraun er eftir getur notandi hafið hana síðar.

Reglurnar eru birtar áður en kaup eru staðfest og aftur áður en prófið hefst. Með því að ýta á „Byrja“ staðfestir notandi að hann hafi kynnt sér og samþykkt prófreglurnar.

5. Réttar upplýsingar

Notandi ber ábyrgð á að setja inn réttar upplýsingar í ferilskrá, kynningarbréf eða önnur skjöl. Easy CV ber ekki ábyrgð á rangri stafsetningu, röngum dagsetningum, röngum starfsheitum eða öðrum upplýsingum sem notandi setur sjálfur inn.

Við mælum með að notendur lesi skjalið vandlega yfir áður en það er sent til atvinnurekanda eða annars aðila.

6. Tæknileg vandamál

Ef tæknilegt vandamál kemur upp í kaupferli eða við afhendingu skal notandi hafa samband við Easy CV á hallo@easycv.is með upplýsingum um vandamálið.

Við reynum að leysa slík mál eins fljótt og hægt er, til dæmis með því að veita aðgang að keyptri þjónustu, laga villu eða skoða endurgreiðslu ef við á.

Ef tæknilegt vandamál kemur upp meðan á ECV Kunnáttuprófi stendur skal notandi senda nafn, kennitölu, pöntunarnúmer og lýsingu á vandamálinu á hallo@easycv.is svo hægt sé að skoða atvikið.

7. Notkun keyptra skjala

Notandi má nota eigin ferilskrá, kynningarbréf og önnur skjöl sem hann býr til í Easy CV fyrir eigin umsóknir, atvinnuleit og persónulega notkun.

Óheimilt er að afrita, endurselja eða dreifa sjálfri þjónustunni, hönnuninni eða kerfinu sem eigin vöru án leyfis frá Easy CV.

8. Endurgreiðslur

Um endurgreiðslur gildir sérstök endurgreiðslustefna Easy CV. Notendur eru hvattir til að lesa hana áður en kaup eru staðfest.

Endurgreiðslubeiðnir má senda á hallo@easycv.is með upplýsingum um kaup og ástæðu beiðninnar.

ECV Kunnáttupróf eru ekki endurgreidd nema staðfestur tæknilegur galli hjá Easy CV hafi komið í veg fyrir eðlilega framkvæmd prófsins. Fall á prófi, ónotuð tilraun, útrunninn svartími eða ógilding vegna fráviks frá prófglugganum eru ekki endurgreiðsluástæður.