Dæmi um einfalda og góða ferilskrá
Þetta er tilbúið dæmi með ímynduðum upplýsingum. Notaðu uppbygginguna sem fyrirmynd, en skrifaðu alltaf þína eigin reynslu og hæfni.
Nafn og upplýsingar
Sara Jónsdóttir
Reykjavík
sara@example.is
555 1234
Persónuleg kynning
Ábyrg og þjónustulunduð manneskja með reynslu af afgreiðslu, samskiptum við viðskiptavini og daglegu skipulagi. Ég er fljót að læra, mæti vel og legg áherslu á kurteisi, nákvæmni og góð vinnubrögð.
Starfsreynsla
Afgreiðsla — Dæmi verslun, 2024 - 2025
• Aðstoðaði viðskiptavini, gekk frá vörum og sá um daglega afgreiðslu.
• Hélt vinnusvæði snyrtilegu og vann vel með öðrum á álagstímum.
Menntun
Menntaskóli í Reykjavík, 2022 - nú
Almenn námsbraut með áherslu á íslensku, ensku og samfélagsgreinar.
Hæfni
Þjónustulund
Stundvísi
Samskipti
Skipulag
Íslenska og enska
Grunnþekking á tölvum
Meðmælendur
Meðmælendur veittir sé þess óskað.
Hvernig notarðu þetta ferilskrá dæmi?
Byrjaðu á að skipta út ímynduðum upplýsingum Söru fyrir þínar eigin. Skrifaðu nafn, símanúmer og netfang sem þú notar reglulega, síðan tvær eða þrjár setningar um reynslu þína og starfið sem þú sækir um. Þú þarft ekki að nota sömu kynningu fyrir öll störf: í verslun skiptir þjónusta máli, en í skrifstofustarfi getur verið gagnlegra að nefna skipulag, tölvukunnáttu og vinnu með gögn.
Dæmi um starfsreynslu fyrir verslunarstarf
Afgreiðslufulltrúi, Dæmi verslun, 2024–2025. Aðstoðaði viðskiptavini við að finna vörur og svaraði spurningum um úrval og verð. Sá um áfyllingu, frágang og afgreiðslu á álagstímum. Þetta segir meira um vinnuna en að skrifa aðeins „afgreiðsla“ undir starfsheitið.
Dæmi ef þú hefur ekki unnið áður
Ekki búa til starfsreynslu sem þú hefur ekki. Settu í staðinn inn skólaverkefni, sjálfboðavinnu eða félagsstarf sem þú getur lýst af nákvæmni: „Skipulagði verkefnaskiptingu í fjögurra manna hópi og kynnti niðurstöðurnar fyrir bekknum.“ Sjáðu líka heilt dæmi um ferilskrá án starfsreynslu.
Hvað á að breyta áður en þú sendir umsókn?
Berðu ferilskrána saman við atvinnuauglýsinguna. Veldu þau verkefni og þá hæfni sem skipta mestu fyrir starfið, athugaðu dagsetningar og stafsetningu og lestu skjalið einu sinni sem PDF áður en þú sendir það. Ef þú vilt sjá hvernig sama efni lítur út í mismunandi uppsetningu geturðu skoðað ferilskrá sniðmátin og síðan búið til þína eigin ferilskrá.
